November 7, 2007

Færeyjar - dagur 1

Zunderman @ 11:09 pm

Ég er búinn að steingleyma hvað flugvöllurinn heitir. Ég man ekki hvar námskeiðið verður og ég veit varla hvað ég er að fara að læra.

En ég held að Jói Tryggva (UÍA formaður og fararstjóri) þekki alla eyjarskeggja. Hann þekkti flugstjórann, tollarann, manninn á öryggisbílnum og þann sem keyrði töskunum okkar úr vélinni.

Það fyrsta sem tók við mér í flugvélinni var forsíða dagblaðsins Dimmalætting (Afturelding). Þar var stór mynd af Jens Martin Knudsen, fyrrum landsliðsmarkverði og markverði Leifurs, Ólafsfirði. „Ein legenda hevur lagt húgvuna.“
Þegar Jens Martin var 18 ára gamall fékk hann heilahristing og var bannað að spila fótbolta um hríð. Helst átti hann að spila með hjálm, en vildi það ekki svo úr varð að mamma hans prjónaði handa honum húfu. Húfan er löngu orðin goðsagnakennd og verður færð á safn hjá Knattspyrnusambandi Evrópu.

Göturnar hér í Þórshöfn eru níðþröngar. Dreifbýlið minnir á staðina fyrir austan, þetta eru firðir, gömul hús, ekki úr steypu, í ýmsum litum og svo er höfn. Enginn markaðslandbúnaður er af viti á eyjunum, fyrst og fremst sjálfsþurftarbúskapur. Við keyrðum í gegnum Sandavog þar sem kartöflugarður er við hvert hús og kindurnar standa nánast á miðju aðalstræti. Þórshafnarbúar, sem eiga flestir ættir að rekja út á land, hafa þannig aðgang að einhverjum sem getur útvegað landbúnaðarvörur. Mjólkurbúin eru þrjú, þau framleiða fyrst og fremst ferskmjólk. Lítil framleiðsla er á öðrum afurðum.

Eyjarnar eru nánast bara nokkrir klettar sem rísa upp úr hafinu. Jarðvegur lítill sem enginn. Í kirkjugarðana er keyrt efni sem hinir látnu eru greftraðir í, annars þyrfti að sprengja fyrir hverri gröf.

Ég horfði í kvöld á United leikinn á Manhattan kránni. Færeyskir stuðningsmenn ætla að stofna formlegan United klúbb eftir mánuð og hafa myndað undirbúningsnefnd. Hún hefur óskað eftir samstarfi við íslenska klúbbinn og ég var sendur utan, með fullan poka af MUSC Iceland dóti, til klúbbsins. Þeir spurðu líka út í ýmis mál varðandi klúbbinn, einkum miðamál. Fæstir sem vinna að stofnuninni hafa farið á Old Trafford. Fréttamaðurinn, sem er í forsvari fyrir undirbúningsnefndina, hafði einu sinni farið á Old Trafford. „5. maí 1990. Charlton, 1-0. Paul Ince skoraði,“ sagði hann og gaf mér glas af Pepsí. „Frændi.“ Hann spurði mig hvaða liði ég héldi með í Landsbankadeildinni. „Ég er utan af landi og þar halda allir með ÍA.“ Hann brosti og spurði mig hvort ég myndi eftir sóknarmanninum Uni Arge. Já - hann brosti. Og ekki minnkaði kátínan yfir Jens Martin.

Tengilliður minn við United klúbbinn hér er Birnir Hauksson, Íslendingur sem vinnur sem tækniteiknari, á hjólbarðaverkstæði og sem bakari. Hann er frá Höfn og þekkir Galdramennina þar. Svona er heimurinn smár.

2 Innlegg »

  1. Hey, þú verður að spyrja alla sem þú hittir hvort hann/hún sé nokkuð frændi/frænka mín. Ég á helling af frændfólki í Færeyjum.

    sagði Raggi — November 7, 2007 @ 11:37 pm

  2. það er mikið bull að það haldi allir með ía á lansbyggðinni. en annars er gaman að sjá að maður hefur séð tvö stórlið eigast við fyrir þó nokkrum árum reyndar.

    sagði Eiríkur — November 10, 2007 @ 1:02 am

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Láttu heyra í þér


Powered by WordPress. Theme by H P Nadig

Bad Behavior has blocked 23 access attempts in the last 7 days.